Ice Age: Dawn of the Dinosaurs (2009) ***1/2


Scrat frá sjónarhorni hálskirtla í risaeðlu.
 
"Ice Age: Dawn of the Dinosaurs" er sú besta af þeim þremur kvikmyndum sem fjalla um vini okkar í fjöltegundahjörð fornaldarhetja. Og hún hefur að geyma eina bestu notkun á þrívídd sem ég hef séð í teiknimynd. Hún kynnir einnig til sögunnar snilldarbragð sem leyfir framhaldsmyndum að eiga sér stað hvar sem er: Það er nefnilega land undir yfirborði jarðar, skilurðu...
 
Jæja, ef það getur verið eitt land, þá getur verið hvaða fjöldi af löndum sem er, meðal annars ekki bara þetta þar sem risaeðlur ráfa um, heldur einnig tímahlið inn í framtíðina, eða út í geim sem leiðir til annarrar plánetu. Við getum búist við Manny og Ellie í Vegas, eða Scrat á Mars. Landið í þessari mynd líkist fornaldar frumskógi, ef slík náttúra hefði bæði fossa úr logandi hrauni og vatni. Þar sem það er undir yfirborðinu, hefur það nokkurs konar steinþak sem þó hleypir óbeinni lýsingu í gegn einhvers staðar sem viðheldur fjölbreytilegu jurtalífi.

Allir vinir okkar eru komnir til baka, ásamt nýjum, meðal þeirra hinn ógurlegi T-Rex og skvísa fyrir íkornann Scrat, sem kallast Scrattè, með áberandi frönskum framburði yfir è-inu. Eins og er við hæfi fyrir þetta land fyrir tímatal, þá eru Scrat og Scrattè sverðtenntir íkornar. Engin furða að stóru tennurnar dóu út. Þær eru gagnlegri fyrir kjötætur en grænmetisætur. En rökfræði eins og þessi gerir ekkert gagn í kvikmynd þar sem letidýrið Sid (með rödd John Leguizamo) fóstrar þrjú risaeðluegg og ætlar að ala afkvæmin upp sjálfur.

Þannig enda þau öll undir yfirborði hinnar Holu Jarðar, landinu sem Edgar Rice Burroughs kallaði Pellucidar, og ég reikna með að slíkum stað megi gefa hvaða því nafni sem þér dettur í hug. Risaeðlumóðirin leitar að erfingjum sínum, grípur þá og Sid, og hverfur svo undir yfirborðið. Allir-fyrir-einn, einn-fyrir-alla er mottóið sem gildir meðal vina okkar, sem veita eftirför: Loðfílarnir Manny og Ellie (Ray Romano og Queen Latifah), sverðtennta tígrisdýrið Diego (Denis Leary), og sófadýrin Eddie og Crash (Josh Peck og Seann William Scott). Þau hitta hreysiköttinn Buck (Simon Pegg) sem er með lepp fyrir auga í staðinn fyrir staurfót, en hann hefur sterka þráhyggju um að finna hina stórfenglegu hvítu risaeðlu, sem því miður heitir ekki Moby Dino.

bilde?Site=EB&Date=20090629&Category=REVIEWS&ArtNo=906299995&Ref=V3&Profile=1023&MaxW=415&title=1
Ný-útunguð móðurlaus börn í "Ice Age: Dawn of the Dinosaurs."

Í Ice Age myndunum lærir tígrisdýrið að lifa í sátt og samlyndi með jafn ætilegum tegundum og letidýrum og gasellum, en risaeðlur hafa ekki verið skráðar í sáttmálann, og þessi er svo stór að hún gæti jafnvel étið heilan loðfíl í einum bita. Það er sviðsetning fyrir það sem myndaröðin er þekkt fyrir -- eltingarleiki sem innihalda svimandi hröp, slöngvun til himna og bjarganir á síðustu stundu frá  ókunnugum meltingarvegi. Þetta er hrein sköpun. Ólíkt samdauna eltingarleikjum í sumum fjölskylduteiknimyndum þá er "Ice Age: Dawn of the Dinosaurs" stöðugt uppfinningasöm á myndrænan hátt.

Carlos Saldanha, handritshöfundur myndarinnar frá 2002 og aðstoðarleikstjóri (vonbrigði) "Ice Age: The Meltdown" (2006) leikstýrir í þetta skiptið, og mörg af atriðunum hans eru í anda snilldaratriðsins þar sem Scrat eltist við akarnið í opnunaratriði fyrstu "Ice Age" myndarinnar. Meðal þeirra er atriði þar sem Scrat, Scrattè og akarnið eru föst innan í fljótandi kúlum, sem er ekkert mál fyrir akarnið. Þetta akarn er afar hæfileikaríkt og minnir á Gilbert O'Sullvian söngbókina sem tjáir hversu einmana akarn hlýtur stundum að vera. Þú vilt ekki borða of hratt svona gáfað akarn.

Mér fannst þrívíddin vel gerð. Samt er ég ósannfærður um ferlið. Þú þarft að fikta í gleraugunum, birtan er minni en á venjulegri sýningu, og svo framvegis. En ég var hissa á hversu vel  "Dawn of the Dinosaurs" notfærir sér þrívíddina. Hún skapar miklu minna af truflandi fljúgandi víddir, og tekst með mikilli færni að láta alla myndina virðast heilsteypta. Myndin er einnig víða sýnd í tvívídd ef þú vilt spara þér nokkrar krónur. Ég mæli með þeirri leið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband